Herkúles óskar ykkur öllum gleðilegra jóla!
Megi ykkur öllum ganga sem best í stærðfræði og náttúrufræðigreinum á nýju ári!
Herkúles óskar ykkur öllum gleðilegra jóla!
Megi ykkur öllum ganga sem best í stærðfræði og náttúrufræðigreinum á nýju ári!
Nú er stærðfræðinámskeiðum Herkúlesar lokið haustönnina 2011. 230 nemendur sóttu
námskeiðin sem er um 15% aukning frá síðustu önn. Námskeiðin voru haldin fyrir nemendur úr Verzló, MS og MR. Öll námskeiðin fóru fram í Háskólanum í Reykjavík þar sem aðstaða til kennslu er með besta móti. Námskeiðin sem voru haldin eru:
Við erum ánægðir með útkomuna og þær góðu móttökur sem námskeiðin hafa fengið. Frá upphafi hafa verið haldin 24 námskeið. Við þökkum nemendum fyrir ásamt því góða kennarateymi sem starfar hjá Herkúlesi. Fjöldi nemenda hafði á orði við okkur að þeir hefðu lært mikið og náð tökum á atriðum sem ekki voru ljós fyrir námskeið.
Við munum opna fyrir skráningu á námskeið Herkúlesar á vorönn 2012 í lok mars eða byrjun apríl. Ef nemendur hafa sérstakar óskir um námskeið hvetjum við þá um að hafa samband með góðum fyrirvara.
Gagni ykkur vel í prófunum og stærðfræðinni.
Biggi og Maggi
Herkúles hefur bætt við öðru námskeiði í stærðfræði 103 fyrir Verzló þar sem eftirspurnin var mikil! Þeir sem voru á biðlista eru nú sjálfkrafa skráðir. Nú eru því tveir hópar á STÆ 103 námskeiði. Báðir hópar eru á sama tíma, fyrir hádegi helgina 26.-27. nóvember.
Herkúles hefur bætt við öðru aukanámskeiði í stærðfræði 313 fyrir Verzló þar sem eftirspurning var mikil! Þeir sem voru á biðlista eru nú sjálfkrafa skráðir. Nú eru því þrír hópar á STÆ 313 námskeiði. Tveir þeirra eru á sama tíma, fyrir hádegi helgina 19.-20. nóvember og þriðjudagskvöldið 22. nóv. Þriðji hópurinn er hinsvegar eftir hádegi helgina 19.-20. nóvember og miðvikudagskvöldið 23. nóvember.
Vegna fjölda áskoranna bætti Herkúles við námskeiði í stærðfræði 463 fyrir Verzló!
Hvetjum ykkur til að skrá ykkur og ganga frá greiðslu sem fyrst.
Skráningin fer fram á síðu námskeiðsins hér á heimasíðunni herkules.is.
Skráning hefur einnig verið opnuð fyrir námskeið haustannar 2011. Herkúles heldur að þessu sinni námskeið fyrir Verzló, MS, Kvennó og MR. Skráning fer fram hér á heimasíðunni, herkules.is. Munið að skrá ykkur tímanlega!