Nú er stærðfræðinámskeiðum Herkúlesar lokið haustönnina 2011. 230 nemendur sóttu
námskeiðin sem er um 15% aukning frá síðustu önn. Námskeiðin voru haldin fyrir nemendur úr Verzló, MS og MR. Öll námskeiðin fóru fram í Háskólanum í Reykjavík þar sem aðstaða til kennslu er með besta móti. Námskeiðin sem voru haldin eru:
- STÆ 103 fyrir Verzló
- STÆ 313 fyrir Verzló
- STÆ 403 fyrir Verzló
- STÆ 463 fyrir Verzló
- 1. ár náttúrufræðibraut fyrir MR
- 1. ár náttúrufræðibraut fyrir MS
- 2. ár náttúrufræðibraut fyrir MS
- 4. ár náttúrufræðibraut fyrir MS
Við erum ánægðir með útkomuna og þær góðu móttökur sem námskeiðin hafa fengið. Frá upphafi hafa verið haldin 24 námskeið. Við þökkum nemendum fyrir ásamt því góða kennarateymi sem starfar hjá Herkúlesi. Fjöldi nemenda hafði á orði við okkur að þeir hefðu lært mikið og náð tökum á atriðum sem ekki voru ljós fyrir námskeið.
Við munum opna fyrir skráningu á námskeið Herkúlesar á vorönn 2012 í lok mars eða byrjun apríl. Ef nemendur hafa sérstakar óskir um námskeið hvetjum við þá um að hafa samband með góðum fyrirvara.
Gagni ykkur vel í prófunum og stærðfræðinni.
Biggi og Maggi









