Lok námskeiða vorannar 2012 – 15% aukning frá síðustu önn

Nú er námskeiðum vorannar 2012 lokið. Námskeiðin gengu vel og voru bæði foreldrar og nemendur ánægðir. Kennarateymið stóð sig frábærlega og nemendur lögðu sig fram en það skiptir mestu máli. Margir nemendur nefndu sérstaklega að þeir hefðu lært mikið og að námskeiðið hefði hjálpað þeim mikið fyrir vorprófið.

Þessa önnina mættu til okkar tæplega 270 nemendur sem er 15% aukning frá síðustu önn. Námskeiðin í þetta sinn voru haldin fyrir nemendur úr Verzló, MS og fyrir 10. bekk í grunnskólum. Flest námskeiðin fóru fram í Háskólanum í Reykjavík en einnig var kennt í Réttarholtsskóla og Fossvogsskóla.

Opnað verður fyrir skráningu á námskeið Herkúlesar í haust í lok október eða byrjun nóvember. Ef nemendur hafa sérstakar óskir um námskeið hvetjum við þá um að hafa samband með góðum fyrirvara.

Gagni ykkur vel í prófunum og stærðfræðinni.

Biggi og Maggi

Opið fyrir skráningu á námskeið vorannar 2012

Skráning hefur verið opnuð fyrir námskeið vorannar 2012. Herkúles heldur að þessu sinni námskeið fyrir Verzló, Menntaskólann við Sund og 10. bekk.
Námskeið í boði fyrir Verzló:

Námskeið í boði fyrir MS:

Námskeið í boði fyrir 10. bekk:

Hvetjum nemendur til að skrá sig tímanlega á námskeiðin. Allar nánari upplýsingar er að finna undir námskeið.

Hlökkum til að sjá þig!

Lok námskeiða haustannar 2011 – 15% aukning milli anna

Nú er stærðfræðinámskeiðum Herkúlesar lokið haustönnina 2011. 230 nemendur sóttu
námskeiðin sem er um 15% aukning frá síðustu önn. Námskeiðin voru haldin fyrir nemendur úr Verzló, MS og MR. Öll námskeiðin fóru fram í Háskólanum í Reykjavík þar sem aðstaða til kennslu er með besta móti. Námskeiðin sem voru haldin eru:

  • STÆ 103 fyrir Verzló
  • STÆ 313 fyrir Verzló
  • STÆ 403 fyrir Verzló
  • STÆ 463 fyrir Verzló
  • 1. ár náttúrufræðibraut fyrir MR
  • 1. ár náttúrufræðibraut fyrir MS
  • 2. ár náttúrufræðibraut fyrir MS
  • 4. ár náttúrufræðibraut fyrir MS

Við erum ánægðir með útkomuna og þær góðu móttökur sem námskeiðin hafa fengið. Frá upphafi hafa verið haldin 24 námskeið. Við þökkum nemendum fyrir ásamt því góða kennarateymi sem starfar hjá Herkúlesi.  Fjöldi nemenda hafði á orði við okkur að þeir hefðu lært mikið og náð tökum á atriðum sem ekki voru ljós fyrir námskeið.

Við munum opna fyrir skráningu á námskeið Herkúlesar á vorönn 2012 í lok mars eða byrjun apríl. Ef nemendur hafa sérstakar óskir um námskeið hvetjum við þá um að hafa samband með góðum fyrirvara.

Gagni ykkur vel í prófunum og stærðfræðinni.

Biggi og Maggi

STÆ 103 fyrir VÍ – aukanámskeið

Herkúles hefur bætt við öðru námskeiði í stærðfræði 103 fyrir Verzló þar sem eftirspurnin var mikil! Þeir sem voru á biðlista eru nú sjálfkrafa skráðir. Nú eru því tveir hópar á STÆ 103 námskeiði. Báðir hópar eru á sama tíma, fyrir hádegi helgina 26.-27. nóvember.

STÆ 313 fyrir VÍ

Herkúles hefur bætt við öðru aukanámskeiði í stærðfræði 313 fyrir Verzló þar sem eftirspurning var mikil! Þeir sem voru á biðlista eru nú sjálfkrafa skráðir. Nú eru því þrír hópar á STÆ 313 námskeiði. Tveir þeirra eru á sama tíma, fyrir hádegi helgina 19.-20. nóvember og þriðjudagskvöldið 22. nóv. Þriðji hópurinn er hinsvegar eftir hádegi helgina 19.-20. nóvember og miðvikudagskvöldið 23. nóvember.

STÆ 463 fyrir VÍ

Vegna fjölda áskoranna bætti Herkúles við námskeiði í stærðfræði 463 fyrir Verzló!
Hvetjum ykkur til að skrá ykkur og ganga frá greiðslu sem fyrst.
Skráningin fer fram á síðu námskeiðsins hér á heimasíðunni herkules.is.

herkules.is

Ný heimasíða Herkúlesar er nú komin í loftið, www.herkules.is. Hér verður hægt að fá upplýsingar um hvaða námskeið eru í boði ásamt því að skrá sig á námskeið. Til hamingju Herkúles!